Skýrsla formanns 2011
SKÝRSLA STJÓRNAR FÉLAGS FAGFÓLKS Í FJÖLSKYLDUMEÐFERÐ MARS. 2010 – FEBR. 2011
Stjórn hefur verið skipuð á eftirfarandi hátt:
Formaður
Þuríður Hjálmtýsdóttir (2010 – 2012)
Stjórnarmenn:
Anna Rós Jóhannsdóttir (2009 – 2011)
Elísabet Berta Bjarnadóttir (2009 – 2011)
Karl Marinósson (2009 – 2011)
Varamenn:
Sigrún Toby Hermann (2009 – 2011)
Stefán Jóhannsson (2009 – 2011)
Starf stjórnar:
Stjórnarfundir hafa verið 8 talsins.
Stjórn hefur lagt áherslu á að efla fræðslustarf félagsins félagsmönnum til góða. Þá hefur verið lögð áhersla á að koma starfi félagsins í hefðbundin farveg sem hægt sé að fylgja í komandi framtíð. Sú hefð hefur verið mótuð að stjórn hittist að jafnaði einu sinni á mánuði að undanskildum sumarmánuðum. Þá er reiknað með að félagið standi fyrir þremur samkomum á önn. Þar má telja samkomu svo sem spjallkaffi, fræðslufundi, vinnustofur, ráðstefnur og málþing innlendra þerapista.
Ýmis önnur mál hafa verið til umfjöllunar stjórnar svo sem lög félagsins, menntunarmál fjölskylduþerapista á Íslandi, heimasíðumál, fjármál félagsins og almenn mál sem tengjast rekstri félagsins.
Aðrir sem tengdust starfi stjórnar:
Margrét Sigurðardóttir hjálpaði til við undirbúning málþings í Skálholti.
Nanna Sigurðardóttir tók að sér að vera fulltrúi félagsins á Norrænni ráðstefnu í Svíþjóð haustið 2011.
Helga Þórðardóttir og Sigrún Júlíusdóttir áttu fund með stjórn um fjölskyldumeðferðarnám við Endurmenntun Háskóla Íslands.
Formaður félagsins situr í fagráði fjölskyldumeðferðarnámsins og sat einn fund ráðsins.
Meðlimir
Meðlimum hefur fjölgað frá því að vera ríflega 20 í að vera 43. Þetta er mikið gleðiefni.
Viðburðir
Lilly May Bakken
Félagið fékk í heimsókn fjölskyldumeðferðarfræðinginn Lilli May Bakken frá meðferðarstofnuninni Fossum kollektivet í Noregi, fimmtudaginn 25. mars. Hún kynnti meðferðarprógram sem beitt er við meðferð ungra fíkla á aldrinum 18-23 ára. Sérstök áhersla er lögð á fjölskylduvinnu og fjölskyldumeðferð.
Jakko Seikula
Félagið ásamt Handleiðslufélagi Íslands, Handis boðuðu til vorfundar í Norræna húsinu þann 10 apríl. Fyrirlesari var Dr. Jaakko Seikula, sálfræðingur og prófessor við háskólann í Jyvskyl í Finnlandi. Hann hefur haft forystu um uppbyggingu vinnuaðferða þar sem félagslegu neti skjólstæðingsins er beitt í geðlækningum, sérstaklega við geðrof og aðra alvarlega sjúkdóma.
Málþing í Skálholti
Fyrsta málþing félagsins með innlendum þerapistum var haldið í Skálholti 3 – 4 júni undir þemanu “Mætumst, gefum og þiggjum”.
Fundarastjóri var Þuríður Hjálmtýsdóttir.
Karl Marinósson fjallaði um samtöl við börn og foreldra út frá tengslakenningum.
Rannveig Guðmundsdóttir deildi reynslu sinni af starfi sínu hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Þuríður Hjálmtýsdóttir deildi hugmyndum frá formannafundi Norðurlandanna um strauma og stefnur á akri fjölskyldumeðferðar.
Margrét Gísladóttir fjallaði um viðhorf og vanda í fjölskyldumeðferð og fjölskylduvinnu.
Stefán Jóhannsson fjallaði um tilfinningar og tjáskipti.
Spjallkaffi
Spjallkaffi var haldið þann 23 september. Anna Rós Jóhannsdóttir spjallaði við Sigrúnu Júlíusdóttur. Sigrún er brautryðjandi á sviði fjölskyldumeðferðar á Íslandi og í hópi þeirra fyrstu sem fetuðu veginn.
Jólagleði
Boðað var til jólagleði 3 desember. Þuríður Hjálmtýsdóttir opnaði samkomuna með hugleiðingu um það hvernig andleg afstaða þerapistans hefur áhrif í meðferð.
Alþjóðlegt samstarf
Norðurlönd
Stjórn hefur lagt áherslu á samstarf við Norðurlönd. Af því tilefni sat formaður sameiginlegan stjórnarfund í Osló 1. og 2. maí þar sem norska, sænska og finnska félagið áttu fulltrúa sína. Aðallega var rætt um norrænt samstarf, undirbúning 9. Norrænu ráðstefnunnar í Svíþjóð og stöðu fjölskyldumeðferðar í viðkomandi löndum. Auk þess var skipts á skoðunum, ögranir og markmið rædd.
Formaður lagði fram fyrirspurn um möguleika FFF að gerast aðili að Fokus på Familien. Fyrirspurnin var lögð fram á ársfundi Fokus. Svör voru óljós og málið sett í biðstöðu. Við nánari athugun virðist aðild vera mjög dýr og greiddu norðmenn á síðasta ári sem svarar N.kr. 270.000 fyrir aðild.
Jafnframt hafa fulltrúar Ísland setið norska ráðstefnu í fjölskyldumeðferð sem haldin er árlega í tenglum við aðalfund þar í landi. Í ár sóttu Anna Rós Jóhannsdóttir og Þuríður Hjálmtýsdóttir ráðstefnuna.
Hans Christian Michaelsen var valinn fulltrúi Norðurlanda í Evrópusamtökunum EFTA í Paris í október 2010 þegar Eija-Liisa Tautianen frá Finnlandi fór frá sem fulltrúi.
Evrópa
Tengiliður stjórnar við Evrópusamtökin, EFTA er Sigrún Toby Hermann. Félagið hefur tekið upp að nýju greiðslu fyrir félagsaðild að EFTA.
Lokaorð
Stjórn félagsins hefur fulla trú á því að vaxandi þörf sé fyrir félag eins og FFF. Mikilvægt er að félagið geti orðið afl í þjóðfélaginu sem standi fyrir breiðri sýn á manneskjuna og fjölþætt tengsl hennar. Þá er fjölbreytni í meðferð mikilvæg. Fjölskyldumeðferð felur í sér góða meðferðarsýn. Þess vegna skiptir máli að kynna fagið út á við í samfélaginu.
Þá er mikilvægt að félagið sé vettvangur fyrir þá sem stunda fjölskylduráðgjöf og fjölskylduvinnu. Stjórn sér félagið bæði sem vettvang til að fræðast, halda sér við í starfi og kynnast öðrum sem hafa tileinkað sér sams konar nálgun. Jafnframt sem vettvang þar sem fjölskylduþerapistar starfandi á landinu geta komið fram og kynnt og rætt störf sín og hugarefni.
F.h. stjórnar Þuríður Hjálmtýsdóttir formaður.