Saga félagsins
FFF - Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð
Fyrsti formaður félagsins var Hrefna Ólafsdóttir. Hrefna var formaður til ársins 2000. Á V. Norrænu ráðstefnu fjölskyldufræðinga í Finnlandi, samþykkti Hrefna að halda næstu Norrænu ráðstefnuna hér á landi. Hrefna varð að segja af sér vegna veikinda en Ludvig Larusson fjölskyldufræðingur og sálfræðingur var þá kjörin formaður.
Ásamt þáverandi stjórn, þ. e. Toby S. Herman, Helgu Þórðardóttur og Björgu Karlsdóttur, skipulagði Lúðvíg VI. Norrænu ráðstefnuna hér á landi og tókst hún í alla staði vel. Lúðvíg sagði af sér vegna anna og tók Toby Sigrún, þá varaformaður við af honum.
Hún var síðan kosin formaður til tveggja ára á aðalfundi félagsins 2004 en sagði af sér til að sinna formennsku í IFTA frá 1 júlí. 2005.
Helga Þórðardóttir tók við og Sæmundur Hafsteinsson var settur varaformaður og næsti formaður. Sæmundur sagði af sér og var Freydís J Freysteinsdóttir skipuð í stað hans.
Stjórn FFF og IFTA unnu saman að sameiginlegri alþjóðlegri ráðstefnu sem var haldin hér á landi í óktober 2006. Hingað komu margir þekktir fyrirlesarar, m.a. Insoo Kim Berg og Tom Andersen sem eru nú bæði látin.