Lög Félags fagfólks í fjölskyldumeðferð

Lög félags fagfólks í fjölskyldumeðferð


1. Félagið

Félagið heitir Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð, skammstafað FFF.  Lögheimili og varnarþing er í Reykjavík

2. Aðild

Aðild að félaginu er opin þeim sem hafa háskólanám til starfsréttinda. Jafnframt þeim sem vinna við eða hafa unnið við fjölskyldumeðferð og/eða rannsaka eða kenna á sviðinu. Nemar í fjölskyldumeðferð geta gerst aukaaðilar að félaginu. Nemar hafa ekki aðkvæðisrétt á aðalfundi en málfrelsi og tillögurétt. Þeir sem eru í félaginu þegar lög þessu eru sett halda aðil sinni óháð framangreindum skilyrðum.

3.    Siðareglur

Félagar í FFF skulu fylgja siðareglum FFF en að auki fagfélaga sinna.

4. Tilgangur

Tilgangur Félags fagfólks í fjölskyldumeðferð er eftirfarandi:
a) Breiða út þekkingu og skapa viðurkenningu á fjölskyldumeðferð.
b) Örva samvinnu og tengsl milli einstaklinga og hópa sem fást við fjölskyldumeðferð, kennslu og rannsóknir á sviði fjölskyldumeðferðar og fjölskylduvinnu.
c) Styðja rannsóknir og aðra faglega þróun í fjölskyldumeðferð.
d) Mynda tengsl við sambærileg félög í öðrum löndum.

5. Aðalfundur

Aðalfundur hefur æðsta ákvörðunarvald innan félagsins. Til hans skal boðað bréflega eða með netpósti með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara, á fyrstu önn hvers almanaksárs. Stjórn getur boðað til auka aðalfundar og/eða minnst 1/3 meðlima félagsins geta farið þess á leit skriflega. Aðalfundur er opin öllum meðlimum. Meðlimir sem ekki hafa greitt félagsgjald hafa ekki kostningarétt.

Stjórn félagsins er framkvæmdaraðili þess og fer með fjármál félagsins. Stjórn getur heimilað að ráðstafa hluta tekna félagsins til ákveðinna verkefna svo sem til að stuðla að fræðslu fyrir félagsmenn og til annarra verkefna sem falla undir lið 4 (Sjá einnig lið d).

Stjórn félagsins skal kosinn á aðalfundi félagsins til tveggja ára í senn. Stjórnina sitja fimm félagsmenn og tveir til vara, þeir skipta með sér verkum, nema formaður  sem skal kjósa sérstaklega á aðalfundi.

Aðalfundur fer með eftirfarandi mál:

a) Val fundarstjóra og ritara.
b) Endurskoðaður ársreikningur lagður fram.
c) Nefndir og stjórn gerir grein fyrir störfum liðins árs í stuttu máli.
d) Samþykki starfsáætlunar stjórnar og nefnda  ásamt kostnaðaráætlun komandi árs.
e) Ákvörðun félagsgjalda.
f) Málefni sem kynnt eru til umræðu í boðun aðalfundar
g) Óskir um málefni eða lagabreytingar sem meðlimir félagsins óska eftir að teknir verði upp á aðalfundi þurfa að berast stjórn eigi síðan tíu dögum fyrir aðalfund. Aðalfundi ber einungis að fjalla um málefni sem heyra undir lið 4. Mál eru afgreidd með einfaldri atkvæðagreiðslu. Breytingar á lögum þurfa stuðnings 2/3 hluta fundarmanna. Mál tekin upp undir “önnur mál” þurfa stuðnings meirihluta fundarmanna.
h) Kosning formanns til 2ja ára.
i) Kosning stjórnarmanna til 2 ára. Gera skal ráð fyrir að einungis sé valið um 2 stjórnamenn á hverjum aðalfundi. Hægt er að kjósa stjórnarmenn aftur en miðað skal við að hver stjórnamaður sitji ekki lengur en 6 ár samfleytt. Hægt er að framlengja þann tíma um 2 ár í senn undir sérstökum kringumstæðum
j) Kosning 2 varamanna sem sitja 2 ár. Reiknað er með að einungis 1 varamaður gangi út ár hvert.
k) Kosning  endurskoðanda
l) Kosning í nefndir
m) Hægt er að fara fram á að kosningar séu skriflegar kjósi meirihluti meðlima aðalfundar að svo skuli vera

6. Stjórn

Stjórn fer með umboð félagsins útávið. Verkefni stjórnar eru eftirfarandi:
a) Að sjá til þess að félagið þjóni sem best tilgangi sínum, sjá lið 4.
b) Að framkvæma verkefni sem aðalfundur hefur ákveðið
c) Afgreiða umsóknir um aðild
d) Tilnefna framkvæmdaaðila til sérstakra verkefna
e) Fara með fjármuni félagsins

Stjórn velur varaformann og skiptir með sér verkum. Hún er ákvörðunarhæf þegar minnst 3 meðlimir eru til staðar. Ákvarðanataka fer fram með einfaldri atkvæðagreiðslu. Séu atkvæði jöfn hefur formaður úrslitaákvörðun. Stjórn gerir grein fyrir verkum sínum á aðalfundi og leggur fram viðeigandi gögn.

7. Gildi laga

Lög þessi öðlast gildi á aðalfundi félagsins sem boðað hefur verið til með lögmætum hætti. Tillögur um lagabreytingar skulu berast stjórn félagsins minnst tíu dögum fyrir aðalfund og skulu þær kynntar félagsmönnum skriflega verði því viðkomið. Tillögurnar eru síðan afgreiddar á aðalfundi.

8. Félagið lagt niður

Verði uppi óskir um að leggja niður félagið þarf 2/3 atkvæða bærra félagsmanna á tveimur aðalfundum og á þeim fundum skal taka ákvarðanir um ráðstöfun á eignum félagsins.

 


Síðustu breytingar á lögum voru samþykktar á aðalfundi 17.01.2011. Breytingarnar varða aðild að félaginu.