Aðalfundur 18.03.2010
Aðalfundur Félags fagfólks í fjölskyldumeðferð 18.03.2010
Á fundinn mættu 9 manns.
a) Stefán Jóhannsson var kosin fundarstjóri og Þuríður Hjálmtýsdóttir ritari fundarins.
b) Karl Marinósson lagði fram ársreikning. Rannveig Guðmundsdóttir samþykkti að starfa áfram sem endurskoðandi ársreiknings.
c) Þuríður gerði grein fyrir störfum liðins árs. (sjá nánar skýrslu formanns á heimasíðu). Ingibjörg skýrði aðkomu fræðslunefndar að fræðslumálum félagsins, sérstaklega með tilliti til jólafundar.
d) Karl gerði grein fyrir fyrirhuguðum viðburðum fram á vor: Fyrirlestri Lilly May Bakken í mars, degi með Jakkoo Seikkula í apríl og málþingi í Skálholti í byrjun júní. Jafnframt formannsfundi Norðurlandanna í Osló í byrjun maí. Karl lagði einnig fram kostnaðaráætlun vegna þessa.
e) Félagsgjöld voru ákveðin kr. 4.500 pr. ár. Ákveðið var að bjóða nemum í fjölskyldumeðferð aukaaðild. Félagsgjald þeirra var ákveðið kr. 2.000 pr. ár.
f) Stjórn lagi fram tillögu að lagabreytingum. Umræður spunnust um breytingarnar og voru þær bornar saman við eldri lögin. Nokkrar breytingar voru gerðar á tillögu stjórnar. Lögin voru síðan samþykkt (sjá nánar lög félagsins á heimsíðu). Einnig var rætt um að athuga hvort félagið væri á félagaskrá. Leggja þarf ný lög fram við skráningu á félaginu.
g) Þuríður Hjálmtýsdóttir var kosin formaður félagins til næstu 2ja ára.
f) Eftirtaldir stjórnarmenn voru kostnir: Karl Marinósson gjaldkeri, Anna Rós Jóhannsdóttir meðstjórnandi, Elísabet Berta Bjarnadóttir meðstjórnandi, Stefán Jóhannsson varamaður og Toby Hermann varamaður. Þá mun verða leitað eftir einum til viðbótar í stjórn.
g) Áhugi var hjá einstaklingum sem starfað hafa í fræðslunefnd að gera svo áfram. Ákveðinn var fundur með fræðslunefnd þann 8 apríl á BUGL kl. 16.00 til þess að huga að frekara skipulagningu fræðslumála félagsins.
h) Önnur mál:
Rætt var um að koma upp pósthólfi fyrir félagið.
Rætt mikilvægi þess að kynna betur félagið fyrir þeim sem vinna við fjölskyldmeðferð, afla fleiri meðlima og styrkja starfið. Gera þarf átak í félagaöflun.
Þá er nauðsynlegt að koma netfangalista og heimilisfangaskrá á rétt form en óreiða hefur verið á þessum málum þannig að póstur hefur ekki borist félagsmönnum. Einnig hefur fólk sem reynt hefur að skrá sig í félagið ekki náð fram.