Jólafundur 10. desember
Slegið var á létta strengi á jólafundi FFF. Fengum við Grýlu og Leppalúða ferðalúin í hjónaviðtal. Ekki fundu þau hjónakornin neitt ætilegt í hópi “the reflecting team”. Ýmist voru þessir gríslíngar of horaðir eða of þægir til þess að hægt væri að skella þeim í pottinn. Heldur var Grýla óhress með bónda sinn sökum hans alkunnu leti. Þótti henni hann lítt jafnast á við fyrri eiginmenn þá Gust og Bola. Leppalúði lét sér fátt um aðfinnslur spúsu sinnar en var hinn ánægðasti yfir þeirri athygli sem hann naut frá kvenkyninu í hópnum. Rannveig Guðmundsdóttir leiddi viðtalið af öryggi og festu. Kynnti hún parið til meðferðar með eftirfarandi söng: "Ég þekki Grýlu og hef hana séð, hún er nú sig svo ófríð og illileg með" . Tókst að senda þau hjón heim í hellinn í ástarvímu.