Aðalfundur 2011
AÐALFUNDUR FFF 2011 FUNDARGERÐ
Fundarstjóri var valinn Stefán Jóhannsson og ritari Þuríður Hjálmtýsdóttir.
Gjaldkeri lagði fram endurskoðaðan ársreikning og gerði grein fyrir honum.
Formaður Þuríður Hjálmtýsdóttir gerði grein fyrir störfum liðins árs.
Starfsáætlun næsta starfsárs var lauslega reifuð en ekki náðist að leggja fram kostnaðaráætlun.
Félagsgjöld voru ákveðin kr.4.500 pr. ár. Nemar geta gerst félagar og greiða þá kr. 2.000 pr. ár.
Tillaga um lagabreytingar var lögð fram og samþykkt. Tillagan varðar 2. grein sem fjallar um aðild að félaginu. Greinin hljóðar svo eftir samþykkta breytingu:
2. Aðild
Aðild að félaginu er opin þeim sem hafa háskólanám til starfsréttinda. Jafnframt þeim sem vinna við eða hafa unnið við fjölskyldumeðferð og/eða rannsaka eða kenna á sviðinu. Nemar í fjölskyldumeðferð geta gerst aukaaðilar að félaginu. Nemar hafa ekki aðkvæðisrétt á aðalfundi en málfrelsi og tillögurétt. Þeir sem eru í félaginu þegar lög þessu eru sett halda aðil sinni óháð framangreindum skilyrðum.
Kjörtímabil formanns Þuríðar Hjálmtýsdóttur 2010 - 2012.
Eftirfarandi aðilar voru kostnir til stjórnarsetu:
Barbel G.H. Schmid (2011 – 2013)
Bragi Skúlason (2011 – 2013)
Hrund Sigurðardóttir (2011 – 2013)
Karl Marinósson (2011 – 2013)
Varamenn voru kostnir:
Sigrún Toby Hermann (2011 – 2013)
Stefán Jóhannsson (2011 – 2013)
Eftirtaldir aðilar gengu úr stjórn:
Elísabet Berta Bjarnadóttir (2010 – 2011)
Anna Rós Jóhannesdóttir (2010 – 2011)
Endurskoðandi var kosinn:
Rannveig Guðmundsdóttir
Stjórn þakkar innilega þeim sem unnið hafa starfið síðastliðið ár og horfir með trega eftir þeim sem úr stjórn ganga. Þá eru nýkostnir meðlimir stjórnar hjartanlega velkomnir.
Þ.H.