Spjallkaffi haustsins

Þann 23 september hélt félagið spjallkaffi haustsins. Þuríður Hjálmtýsdóttir spjallaði við Eydísi Sveinsdóttur geðhjúkrunarfræðing. Eydís deildi með okkur faglegri og persónulegri reynslu sinni af námi og starfi á einlægan hátt. Eydís talaði meðal annars um doktorsrannsókn sínu um markvissan fjölskyldustuðning hjúkrunarfræðinga á bráðageðdeildum.  Hún hefur verið einn af frumkvöðlum í þróun nýs þverfaglegs úrræðis á geðsviði Landspítala fyrir foreldra sem eiga við geðsjúkdóm að stríða sem kallast “Fjölskyldubrúin” og “Tölum um börnin”. Metnaður hennar hefur verið að bæta þjónustu við fjölskyldur á Landspítala með því meðal annars að rannsaka árangur af stuttum markvissum meðferðarsamskiptum hjúkrunarfræðinga við fjölskyldur.

Spjallkaffið var í fyrsta sinn haldið í fundarsal en ekki á kaffihúsi. Var stjórn spennt að sjá hvernig það kæmi út. Raddir fundargesta sögðu að það væri mun meira næði og því betra að hlusta og taka þátt í umræðunni. En hugsanlega vildi spjallið verða faglegra en ella sem gæti komið niður á hinum félaglega samveruþætti spjallkafisins.

Vel var mætt, góðar umræður spunnust og allir virtust glaðir og sáttir við sitt.

 

Engar athugasemdir skráðar