Rötter og vinger. Norræn ráðstefna í Visby, Svíþjóð
RÖTTER OG VINGAR
Låt historien inspirera framtiden
Velskipulögð Norræn ráðstefna í fjölskyldumeðferð var haldin á hinni sögufrægu og fallegru eyju Visby í Svíþjóð dagana 17 – 20 ágúst 2011.
Fjórar valkyrjur mættu frá Íslandi: Nanna Sigurðardóttir, Vigdís Jónsdóttir, Helga Þórðardóttir og Þuríður Hjálmtýsdóttir.
Fyrirlesarar nálguðust þemað á margskonar hátt. Sumir litu í eigin barm, skoðuðu sínar rætur og á hvern hátt þær höfðu haft mótandi áhrif á líf viðkomandi. Aðrir ræddu mismunandi meðferðarform við mismunandi andlegri þjáningu svo sem þunglyndi. Enn aðrir voru uppteknir af því hvernig hægt væri að tryggja gæði meðferðar með stöðugu mati skjólstæðinga á árangri meðferðar gegn um matstæki svo sem ORS (Outcome Raging Scale) eða SRS (Session Rating Scale).
Nanna Sigurðardóttir hélt uppi heiðri Íslands með innleggi sínu “The gift of time – Children with cancer in the family”. Fórst henni það í alla staði vel og kann félagið henni þakkir fyrir.