Ráðstefna með Dr. Jim Sheehan
FYRIRGEFNINGIN OG HIÐ ÓFYRIRGEFANLEGA
Þann 10 og 11 mars kom Dr. Jim Sheehan til landsins í boði félagsins og hélt tveggja daga ráðstefnu .
Dr. Sheehan fjallaði um fyrirgefninguna og hið ófyrirgefanlega í samskiptum manna. Þemað getur skipt sköpum í vinnu með fjölskyldur, pör og einstaklinga. Heimspekileg, bókmenntaleg, guðfræðileg, lögfræðileg og sálfræðileg umgjörð var notuð í því skyni að skýra þemað. Tilvísanir í raunveruleg mál í klínísku starfi voru notuð og þátttakendur fengu tækifæri til að tengja hugmyndirnar eigin lífi og meðferðarstarfi.
Ráðstefnan var lærdómsrík og náði Dr. Sheehan tengslum við þátttakendur eins og honum einum er lagið.
Dr. Jim Sheehan er framkvæmdastjóri meistaranáms í fjölskyldumeðferð við Mater Misercordiae Háskólasjúkrahúsið í Dublin og prófessor í fjölskyldumeðferð við Diakonhjemmets Háskólann í Osló. Jim er meðal þeirra fremstu á sínu sviði bæði sem meðferðaraðili, fræðimaður og kennari.





