Jólagleði ársins
Jólagleði félagsins var að þessu sinni haldin í sal BHM 2 desember. Stjórnin lagði metnað sinn í að gera stundina ánægjulega fyrir félagsmenn. Flautuhópurinn Kosi sá um að spila fyrir okkur hugljúf jólalög eins og þeim einum er lagið. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur sagði okkur skemmtilegar jólasögur úr eigin ætt og annarra. Boðið var upp góðar veitingar með öllu saman. Spjallað og glaðst í tilefni aðventunnar.