Formannafundur Norðurlandanna í Sigtuna, Svíþjóð
Þuríður Hjálmtýsdóttir formaður félagsins hélt til fundar við kollegana þann 6 og 7 mars 2011. Að þessu sinni átti Sænska félagið veg og vanda að fundinum. Marie Fornemann undirbjó komu okkar af kostgæfni og gafst okkur góð stund til að deila reynslu okkar af faginu í mismunandi löndum. Heilsuðum við þar nýkjörnum formanni frá Finnlandi, Ritvu Karila Hietala. Eingöngu konur sitja sem formenn um þessar mundir, Marianne Bie frá Noregi og Lisbeth Villumsen frá Danmörku. Hans Christian Michaelsen sýndi okkur þann heiður að koma frá Noregi og fræða okkur um stöðu mála í Evrópusamtökunum, EFTA.
Sigtuna er yndislegur gamall bær, fullur af minjum um frændu okkar víkingana, þá sem ekki sigldu til Íslands en skiluðu sínu með stríði, sigrum og ósigrum í Svíþjóð. Miklir kappar.
Samstarf Norðurlandanna er ómetanlegt fyrir okkar litla félag. Það er gott að finna þann stuðning og samhug sem býr í þessum tengslum.
Næsti formannafundur er fyrirhugaður á Íslandi dagana 27 og 28 apríl 2012.