Samtal um dauðann

Þann 2. febrúar hélt Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur þetta flotta innlegg sem hann kallaði "Samtal um dauðann".  Mjög áhugavert samtal skapaðist meðal þátttakenda og undruðust sumir að við skulum ekki ræða meira um dauðann sem eðlilegan þátt í tilveru okkar.

Samtal um dauðann – Fyrirlesturinn byggði á rannsókn Braga á sjúklingum með alvarlega, ólæknandi sjúkdóma, sem komnir eru á líknarmeðferð. Um var að ræða bæði karla og konur á aldrinum 30-75 ára. Opnunaryfirlýsingar samtala Braga við þennan sjúklingahóp voru skráðar og flokkaðar í þeim tilgangi að kanna hvernig mætti þróa fræðsluefni fyrir fagfólk sem vinnur að málefnum þessa sjúklingahóps. Ennfremur var skoðað hvort þessir einstaklingar geti nýtt sér inngrip (evocation) til að auðvelda þeim að ræða um eigin, yfirvofandi dauða.

Engar athugasemdir skráðar