Bridge over troubled water

Vettre 3Vettre 1Vettre 2Vettre 4

Anna Rós Jóhannsdóttir og Þuríður Hjálmtýsdóttir þáðu boð norðmanna um að sitja árlega ráðstefnu þeirra í fjölskyldumeðferð þann 2. - 4. febrúar í ár. Þema ráðstefnunnar var "Bridge over troubled water". Þemað höfðaði til samvinnu faghópa og vinnustaða. Borðskreyting aðalmáltíðar hópsins endurspeglaði þemað: falleg blóm í sitt hvorum enda borðsins með bambusstöng sem lá ofan á skreytingunni milli borðsenda. Þá hljómaði þetta gamalkunna lag Simons og Garfungels við píanóið. En þess má jafnframt geta að Þuríður og Anna Rós stigu á stokk og sungu fyrir norðmennina og reyndu með þeim fátæklega hætti að halda uppi heiðri íslenskra fjölskylduþerapista.

Góð fagleg erindi og vinnustofur voru haldnar. Ráðstefnan var opnuð með því að norski geðlæknirinn Per Gørvell fjallaði um flokkun geðsjúkdóma með tilvísun í þekktar bíómyndir. Sem dæmi um bíómynd má nefna Fatal Attraction með Michael Douglas og Glenn Close í aðalhlutverkum. Að því loknu tók Guri Øiestad við og fjallaði á mjög skemmtilegan hátt um sjálfstraust. Skilgreining hennar var sú að þeir sem hafa gott sjálfstraust bregðast við út frá innri líðan á öruggan hátt.

Sem dæmi um vinnustofu má nefna vinnustofu Nick Duffell og Helenu Lövendal. Þau nefndu vinnustofu sína "Gender Matters". Þar fjölluðu þau um nánd í samböndum para. Vinnustofan var í anda Virginiu Satir og fengu þátttakendur að stilla sér upp í hlutverk og finna á eigin líkama tilfinningar sem geta bærst með pörum eftir því hvernig tengslum og nánd eru háttað.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá ráðstefnunni.

 

 

 

 

 

   
Engar athugasemdir skráðar