Skálholt 2010
Fyrsta málþing félagsins var haldið í Skálholti í byrjun júni 2010. Það er draumur okkar í stjórn félagsins að málþing í Skálholti geti í framtíðinni orðið fastur punktur í tilveru þessa félags og þar með í lífi okkar sem stundum þessa vinnu. Draumsýn okkar er sú að við getum haldið áfram á þeirri braut að byggja upp skemmtilegt, gefandi og fræðandi samfélag þeirra sem stunda fjölskyldumeðferð. Mjög áhugaverð erindi voru flutt:
Karl Marinósson fjallaði um samtöl við börn og foreldra út frá tengslakenningum.
Rannveig Guðmundsdóttir deildi með okkur reynslu sinni af starfi sínu á Fjölskyluþjónustu kirkjunnar.
Þuríður Hjálmtýsdóttir greindi frá hugmyndum formanna norrænu félaganna um þróun í fjölskyldumeðferð.
Margréti Gísladóttur fjallaði um viðhorf og vanda í fjölskyldumeðferð og fjölskylduvinnu.
Stefán Jóhannsson fjallaði um tilfinningar og tjáskipti.
Að loknu góðu málþingi var Skálholt kvatt í öskufalli frá Eyjafjallajökli.