Fréttir af stjórn
Ný stjórn hefur unnið hörðum höndum að því að skipuleggja starf ársins og hefur mikill tími farið í skiplag fræðslumála. Þá hefur komið í ljós rík þörf fyrir starf fræðslunefndar. Gerir stjórn ráð fyrir að félagið standi ýmist fyrir spjallkaffi eða fræðslufundi einu sinni í mánuði yfir vetrarmánuðina. Jafnframt er uppi hugmynd um málþing með innlendum fyrirlesurum nú á vori komandi.
Einnig hafa verið rædd samskipti við erlenda starfsfélaga, sérstaklega norræna.
Þá hefur verið unnið að breyttri heimasíðu. Höfum við notið aðstoðar Bjarna Þórissonar og kunnum við honum þakkir fyrir.
Jafnframt hefur verið unnið að lagabreytingum fyrir félagið.
Nú um stundir stendur fyrir dyrum undirbúningur að aðalfundi félagsins.