Jólagleði 3. des. 2010

Síðasta samkoma vetrarins var haldin á Hótel Centrum. Félagar FFF komu saman og fögnuðu í tilefni aðventu og jóla. Þuríður Hjálmtýsdóttir opnaði samkomuna með hugleiðingu um það hvernig andleg afstaða þerapistans hefur áhrif í meðferð. Síðan spunnust góðar og gagnlegar umræður um reynslu okkar í þeim aðstæðum. Stjórn FFF óskar félögunum gleðilegra jóla, góðs og farsæls komandi árs. Við hlökkum til að hittast á nýju ári og spinna áfram saman vef fjölskyldumeðferðar af áhuga og gleði.

Engar athugasemdir skráðar