Håkon Haartveit frá Noregi
Á þessum degi kom Håkon Hårtvet í heimsókn á fræðslufund en hann er kennslustjóri við fjölskyldumeðferðarnám á Diakonhjemmets höyskolesenter í Oslo. Hann var staddur í Reykjavík til að kenna við fjölskyldumeðferðarnámið við Endurmenntunarstofnun H.I. Håkon ræddi um para meðferð og hans sýn á slíka meðferð. Hann var upptekinn af menningarmun milli heimsálfa og hvernig menningin og mismunandi sýn á hjónabandið stýrir öllum grundvelli fjölskyldulífsins. Þannig ræddi hann m.a. um, að á vesturlöndum byggist framtíð heilu fjölskyldanna, búseta þeirra og möguleikar til tengsla barnanna við vini og skóla á tilfinningum hjónanna til hvers annars, þ.e. tilfinningarnar (ástin) stýra því hvort hjónin búa saman eða skilja með alvarlegum afleiðingum fyrir börnin. Í fjarlægari löndum t.d. Mið Asíu er grunnöryggi fjölskyldunnar byggt á allt öðru þ.e. á félagslegum reglum og skuldbindingum sem breytast ekki þótt arkitektar fjölskyldunnar, þ.e. hjónin hætta að elska hvert annað. Það mætti segja að kjörorðið sé: Fjölskyldan stendur hvernig sem tilfinningar hjónanna er til hvers annars, sem svo leiðir til öryggis um stöðugleika yfir lengri tíma.
Go to <a href=http://www.google.com/>Google</a> English. http://www.google.com/
sedyspoon